Þjónusta & aukahlutir

2 ára viðbótarábyrgð Toyota

Árið 2010 markar þáttaskil í sögu Toyota á Íslandi, en frá og með 1. janúar fylgir 5 ára ábyrgð öllum nýjum Toyota og Lexus bifreiðum – viðskiptavinum að kostnaðarlausu.

Samhliða 5 ára ábyrgðinni mun Toyota í samvinnu við Tryggingarmiðstöðina gera núverandi eigendum Toyota og Lexus bifreiða, sem eru yngri en 4 ára, kleift að kaupa viðbótarábyrgð á bifreiðar sínar – svokallaða 2 ára viðbótarábyrgð Toyota – sem tekur gildi eftir að hefðbundinni 3 ára verksmiðjuábyrgð framleiðandans lýkur og gildir í 2 ár eða upp að 160 þús km akstri bifreiðarinnar

Með 2 ára viðbótarábyrgð Toyota tryggir þú þér víðtæka vernd á bifreið þína og hugarró, fullviss þess að bíllinn þinn sé í góðum höndum fagfólks Toyota. Þessi ábyrgð er eingöngu í boði fyrir Toyota og Lexus bifreiðar og fæst aðeins keypt hjá þjónustuaðilum Toyota um land allt