Þjónusta & aukahlutir

Fimm ára ábyrgð

Árið 2010 markar þáttaskil í sögu Toyota á Íslandi, en frá og með 1. janúar fylgir fimm ára ábyrgð öllum nýjum Toyota og Lexus bifreiðum – viðskiptavinum að kostnaðarlausu. Toyota hefur verið þeirrar gæfu aðnjótandi, allt frá stofnun fyrirtækisins, að búa að langtímasambandi við viðskiptavini sína og er innleiðing fimm ára ábyrgðarinnar enn einn þátturinn í að styrkja frekar þau bönd sem til staðar eru og á sama tíma gera kaup á nýjum Toyota og Lexus bifreiðum enn skynsamari kost en ella.