Um Toyota
Loforð Toyota um gæði
„Héðan í frá vil ég að allir taki höndum saman og sameinist í því að finna leið til að framleiða yfirburðaökutæki.“
Kiichiro Toyoda
stofnandi Toyota Motor Corporation, maí 1939
Ekkert er það gott að ekki sé hægt að bæta það. Þess vegna sækjumst við stöðugt eftir endurbótum á öllu sem við gerum. Það er ekki kjörorð. Eða stefnuyfirlýsing sem við hengjum upp á vegg og gleymum. Þannig vinnum við einfaldlega. Við eigum orð yfir þetta: „kaizen“. Það þýðir „stöðugar endurbætur” og er lykilreglan sem leiðbeinir okkur í leit okkar að fullkomnum gæðum.
Þessi metnaður í gæðamálum skilar raunverulegum ávinningi – ávinningi sem eykur lífsgæði þín. Þetta vitum við því þið segið okkur það stöðugt með því að kjósa Toyota í efstu sæti í óháðum könnunum á ánægju neytenda. Þetta sést einnig á þeim frábæru niðurstöðum sem Toyota fær í öryggisprófunum Euro NCAP. Fyrst og fremst vitum við þetta vegna þess að við leggjum okkur fram við að komast að því hvernig við getum gert reynslu þína af því að eiga Toyota eins góða og hægt er, frá því að þú kaupir bílinn og þar til þú að lokum selur hann.
Fyrir þig þýðir þetta að í hvert skipti sem þú sest inn í Toyota og ræsir vélina upplifir þú fullkomna öryggistilfinningu. Öryggi sem hlýst af því að vita að bíllinn sem þú ekur er hannaður til að uppfylla ströngustu skilyrði um gæði og áreiðanleika. Hjá Toyota eru gæði ekki bara loforð – þau eru lífsstíll.